Fundur um byggðakvóta á Blönduósi
Bæjarráð Blönduóssbæjar hefur lýst yfir áhuga á að funda með hagsmunaðilum um byggðakvóta og nýtingu hans á svæðinu en Blönuósbæ var úthlutað 100 þorskígildistonnum fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 auk þess sem ónotað aflamark byggðalagsins alls 38 þorskígildistonnum vegna byggðakvóta fiskveiðiársins 2009/2010 verður einnig úthlutað.
Þeir aðilar sem áhuga hafa á að taka þátt í slíkum fundi geta sent beiðni þar um til Arnars Þórs Sævarssonar bæjarstjóra á netfangið arnar@blonduos.is fyrir 12. janúar og mun í framhaldi af því verða boðað til fundar á Blönduósi.
