GLEÐILEG JÓL

Feykir óskar öllum gleðilegra jóla nær og fjær.

Vísindavefnum barst spurning sem flestir hafa velt fyrir sér: Hvers vegna er hátíðlegast hjá okkur á aðfangadag þegar við opnum pakkana, en á jóladag víða annars staðar?

Í svari vefsins segir að fæðingarhátíð Jesú Krists, jólin, sé haldin 25. desember. Undirbúningur hátíðahaldsins er aðventan eða jólafastan og lokadagur hennar, 24. desember, nefnist hjá okkur aðfangadagur jóla. Nafnið er gagnsætt. Þá skal undirbúningi lokið og aðföng öll komin til hátíðahaldsins. Helgin hefst síðan um miðjan aftan eða kl. 18. Þá er orðið heilagt og í hönd fer jólanóttin. 

Helgidaga- og hátíðahald kristinna manna studdist upprunalega við gyðinglegt tímatal, en hjá þeim hefst dagurinn við sólsetur. Í þessu fylgjum við Íslendingar fornum sið. Helgidaga- og hátíðahald kristinna manna studdist upprunalega við gyðinglegt tímatal, en hjá þeim hefst dagurinn við sólsetur. Þetta kemur fram í sköpunarsögunni þar sem segir um hvern dag: „Það varð kveld og það varð morgunn ...“ Utan gyðinglegs landsvæðis var hins vegar ekki miðað við sólsetur heldur við miðaftan. Þetta er í fullu gildi hjá okkur um jólin. Um miðaftan 24. desember er orðið heilagt, jólin komin með aftansöngnum í kirkjunum, 25. desember runnin upp. Að loknum aftansöng hefst aðalveisla jólanna og eftir það eru pakkarnir opnaðir.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir