Gönguferð um gamla bæinn
Starfsmenn Þekkingarsetursins og Laxasetursins bjóða upp á leiðsögn um gamla bæinn á Blönduósi á Húnavökunni.
Katharina Schneider og Valgarður Hilmarsson leituðu aðstoðar áhugasamra manna á svæðinu, þeirra Jóns Arasonar og Guðmundar Jónssonar, við skipulag, og Sveins Sveinssonar, eiganda gömlu kirkjunnar á Blönduósi, um framkvæmd.
Farið verður frá Hillebrandtshúsi kl. 10:00 á sunnudagsmorgni, þann 21.7., og mun Sveinn annast leiðsögn. Kl. 10:30 mun Katharina vera með leiðsögn á ensku.
