Hand, fót og munnsjúkdómur á leikskólanum á Skagaströnd
Hand, fót og munnsjúkdómur (áður þekktur sem gin og klaufaveiki) hefur komið upp á leikskólanum Barnabóli á Skagaströnd. Einkenni sjúkdómsins eru hitahækkun og slappleiki, sár í munni og koki, húðútbrot og blöðrur á höndum og iljum.
Á heimasíðu leikskólans kemur fram að Nemendur verða að vera heima þar til útbrotin eru orðin þurr þar sem vessinn frá þeim og frá munni smitar. Til varnar er lítið annað en áhersla á handþvott og mikið hreinlæti.
