Handverkshús á Blönduósi í sumar

Frá blönduósi

Textílsetur Íslands á Blönduósi ætlar í sumar að starfrækja handverkshús á Blönduósi og hefur setrið auglýst eftir starfsmanni til þess að hafa umsjón með handverkshúsinu í sumar.

Verður handverkshúsið staðsett í litlu sumarhúsi við hliðina á upplýsingamiðstöð ferðamanna á Blönduósi.

Mun viðkomandi aðili m.a. bera  ábyrgð á að fylgjast með vöruframboði, sölu og uppgjöri sölukassa og að skrá yfirlit yfir selda muni.

Fleiri fréttir