Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni fá aukafjárveitingu

Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi. Mynd: FE
Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi. Mynd: FE

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að veita um 560 milljóna króna viðbótarfjárveitingu til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni fyrir rekstrarárið 2018. Nemur aukningin að jafnaði um 3% af heildarfjárveitingu stofnananna á árinu. Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær hæstu fjárveitinguna sem nemur 130 milljónum króna.

Í frétt á vef velferðarráðuneytisins segir að aukafjárveitingunni sé fyrst og fremst ætlað að mæta halla á rekstri stofnananna sem stafar að einhverju leyti af veikleika í rekstri en má einnig rekja til ófyrirséðra útgjalda, t.d. vegna mönnunarvanda og veikinda starfsfólks sem kallar á meiri yfirvinnu og þar með aukinn kostnað. 

Ennfremur segir: „Ákveðnar breytingar eru fyrirhugaðar á fjármögnun heilbrigðisstofnana til lengri tíma litið þar sem áhersla verður lögð á að tengja framlög í auknum mæli við árangur. Stefnt er að  því að innleiða sambærilegt fjármögnunarkerfi fyrir heilsugæslusvið stofnananna og notað hefur verið í heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu frá því um mitt ár 2017 og hefur þótt gefa góða raun. Einnig er áformað að breyta fjármögnun á hjúkrunarsviðum stofnananna og taka upp daggjaldagreiðslur líkt og á hjúkrunarheimilum þar sem fjárhæðirnar taka mið af hjúkrunarþyngd íbúanna."

Aukafjárveitingin skiptist sem hér segir milli heilbrigðisstofnana:

  • Heilbrigðisstofnun Vesturlands - 98,8 milljónir króna.
  • Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - 80 milljónir króna.
  • Heilbrigðisstofnun Norðurlands - 130 milljónir króna.
  • Heilbrigðisstofnun Austurlands -70 milljónir króna.
  • Heilbrigðisstofnun Suðurlands - 110 milljónir króna.
  • Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - 71,1 milljón króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir