Heilbrigðisstofnanir og sameining sveitarfélaga

Umræða um viðamiklar sameiningar ríkisstofnana og sveitarfélaga á Íslandi er nú fyrirferðarmikil og ber sannarlega að líta á sem jákvæðan fylgifisk hrunsins. Sameining sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra liggur nú vonandi loks fyrir en hefði betur átt sér stað fyrir 15-20 árum.  Þetta segir Héðinn Sigurðsson framkvæmdastjóri lækninga hjá HSB í aðsendri grein hér á Feyki.

Héðinn segir að um hríð hafi óvissa ríkt um sameiningu heilbrigðisstofnananna á Blönduósi og Sauðárkróki en skipulag þessarar mikilvægu grunnþjónustu á Norðurlandi vestra til framtíðar sé nú á borðum enn eins ráðherrans. Endurskipulagningar hefur lengi verið þörf, sérstaklega á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi en þar hafi starfsánægja verið ein sú lakasta allra ríkisstofnana á Íslandi samkvæmt nýlegri landskönnun, segir Héðinn og bendir á að auðveldara verði fyrir stjórnendur að takast á við viðvarandi mönnunarvanda í sumum starfsstéttum og fjarvistir starfsfólks auk þess sem hætta á faglegri einangrun minnkar ef vel tekst til.

Tilfærsla Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga undir Heilbrigðisumdæmi Vesturlands og nýja stofnun með aðsetur á Akranesi 2008 var gerð í skjóli myrkurs og þvert á öll rök að mati Héðins og formsatriði fyrir nýjan heilbrigðisráðherra að leiðrétta þessa gjörð með einfaldri breytingu á reglugerð.

Grein Héðins má lesa HÉR

Fleiri fréttir