Helstu reiðleiðir á aðalskipulagið

Á skipulagsuppdrætti aðalskipulags Húnavatnshrepps verða aðeins sýndar helstu reiðleiðir samkvæmt því sem fram kom á síðasta fundi hreppsnefndar Húnavatnshrepps. 

Haukur Suska Garðarson og Pétur Jónsson, sem unnið hafa við kortlagningu reiðleiða í Austur-Hún. munu í samráði við skipulagsráðgjafa setja inn þær leiðir sem sýndar verða á skipulagsuppdrætti.  Sá möguleiki var einnig ræddur að birta þemakort með skipulaginu þar sem sýndar eru reiðleiðir í Húnavatnsheppi.

Fleiri fréttir