Húnahópurinn sendir kveðjur
Húnahópurinn hélt sína árlegu jólagleði í Sundlaug Sauðárkróks í gærmorgun og allir kátir og hressir í pottinum að henni lokinni. Hópurinn vildi fá að óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Það er mikil tilhlökkun í hópnum sem getur ekki beðið eftir að framkvæmdum við laugina ljúki svo hægt sé að fara í rennibrautina að loknum góðum sundsprett. Þá hvetur hópurinn alla til að fara í sund á nýja árinu því sund er mikil heilsubót, en það vita auðvitað allir.
Á myndina vantar nokkra félaga en það eru þeir Gunnar Sandholt og Björgvin.
Gleðileg jól