Hurðaskellir vændur um dónaskap

Hurðaskellir er sjöundi jólasveinninn, hávaðabelgur sem skellir hurðum og truflar svefnfrið fólks. Sums staðar gengur hann enn undir nafninu Faldafeykir en hann á að hafa feykt til földum. Þótt margir tengi það við pilsfalda, var upphaflega átt við faldinn sem konur báru á höfðinu. Nafnið Pilsaþytur hefur því heyrst vegna þessa misskilnings, en ekki náð fótfestu og er hvergi getið í heimildum. Tekið af mjolk.is.

Eins og allir vita eru jólasveinar býsna kúnstugir og óútreiknanlegir á allan hátt. Þeir þykjast geta blekkt okkur mannfólkið með því að klæðast rauðum fötum og brosa blítt. En gætið ykkar því í nótt kom leiðindadóni sem skellir hurðum, og er í hæsta máta klúr þegar maður vill fá sér kríu. En í tilefni af því að rétt um vika er í það að jólin verða hringd inn syngur Birgitta Haukdal - Eitt lítið jólalag.

 Sjöundi var Hurðaskellir,
‐sá var nokkuð klúr, 
Ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér væran dúr. 

Hann var ekki sérlega 
hnuggin yfir því,
þó harkalega marraði 
hjörunum í.

Á heimasíðu Jólamjólkur er hægt að finna nokkra gamla og góða jólatexta sem nauðsynlegt er að syngja um jólin. Sjá HÉR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir