Hvað er ÚTÓN? Hvað er STEF?

Föstudaginn 1. mars munu STEF og ÚTÓN halda sameiginlegan fund með norðlensku tónlistarfólki á Akureyri í menningarhúsinu Hofi. Fjallað  verður  um  starfsemi  þessara fyrirtækja, hverskonar verkefni eru í gangi yfir árið og hvaða tækifæri eru til staðar  fyrir  tónlistarfólk. 

Aðal umræðuefni fundarins verður hvað þarftu að hafa til að verða útflutningshæfur? Hvernig  getur ÚTÓN aðstoðað? Hvernig getur STEF hjálpað þér að hámarka tekjur  þínar sem  tónhöfundur? Hvernig er greiðsluflæðið frá tónlistarveitum á netinu og hvernig er hægt að  auka það?
Fundurinn hefst kl. 17:00 og aðgangur er ókeypis.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir