Hvetja stjórnvöld til að styðja áfram refaveiðar

Bæjarráð Blönduósbæjar hvatti stjórnvöld á síðasta fundi sínum til þess að endurskoða þau áform sín að hætta stuðningi við endurgreiðslu vegna refaveiðar.

 Máli sínu til stuðnings bendir bæjarráð á að vöxtur refastofnsins valdi ómældu tjóni á bústofni og fuglalífi ár hvert og því sé brýnt að vinna skipulega að fækkun hans.

Fleiri fréttir