Í kaffi hér í Kjörbúðinni ég kveð ykkur í dag

Rúnar Agnarsson lengst til vinstri við goskælinn en á myndinni með honum eru Aðalbjörg Valdimarsdóttir og Soffía Reynisdóttir verslunarstjóri í afleysingum. MYND: HÚNI.iS
Rúnar Agnarsson lengst til vinstri við goskælinn en á myndinni með honum eru Aðalbjörg Valdimarsdóttir og Soffía Reynisdóttir verslunarstjóri í afleysingum. MYND: HÚNI.iS

Húnahornið góða segir frá því að það var með söknuði sem Rúnar Agnarsson kvaddi vinnustað sinn í dag en hann hefur staðið vaktina á Húnabraut 4 á Blönduósi síðastliðin 32 ár eða svo. Rúnar þekkja allir sem verslað hafa í Kaupfélagi Húnvetninga, Húnakaupi, Samkaupum, Samkaupum Úrvali og nú síðast Kjörbúðinni.

Í fréttinni segir að núverandi samstarfsfélagar Rúnars hafi kvatt kappann með kveðjugjöf, blómum og vöfflukaffi og var létt yfir Rúnari þegar fréttaritari hitti á hann í dag. Fréttaritari stóðst ekki þá freistingu að óska eftir nýrri vísu hjá Rúnari og var hann ekki lengi að henda í eina sem hér kemur:

   Auðunn áðan sagði mér
   að yrkja um ykkur brag
   í kaffi hér í Kjörbúðinni
   ég kveð ykkur í dag.

Fréttariitarinn er Auðunn Sigurðsson ef einhver er að velta því fyrir sér.

- - - - 

Heimild: Húni.is

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir