Jóhanna Erla Pálmadóttir sæmd fálkaorðunni

Frá athöfninni á Bessastöðum í gær. Mynd: forseti.is.
Frá athöfninni á Bessastöðum í gær. Mynd: forseti.is.

Jóhanna Erla Pálmadóttir á Akri í Húnavatnshreppi var í gær, á þjóðhátíðardegi Íslendinga, sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu sem forseti Íslands afhenti við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Riddarakrossinn hlýtur Jóhanna fyrir störf í þágu safna og menningar í heimabyggð en hún verk­efna­stjóri og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Tex­tíl­set­urs Íslands, Blönduósi.

Alls voru sextán Íslendingar sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu að þessu sinni. Þeir eru:

  • Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir ljósmóðir og hjúkrunarstjóri, Kirkjubæjarklaustri, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðis- og björgunarstarfa í heimabyggð.
  • Bára Grímsdóttir tónskáld og formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar, Reykjavík, riddarakross fyrir varðveislu og endurnýjun á íslenskum tónlistararfi.
  • Bogi Ágústsson fréttamaður og formaður Norræna félagsins, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi fjölmiðlunar og norrænnar samvinnu.
  • Guðrún Ögmundsdóttir félagsráðgjafi og fyrrverandi þingkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag í þágu mannúðar og jafnréttisbaráttu hinsegin fólks.
  • Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar.
  • Helgi Árnason skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi skóla og skáklistar ungmenna.
  • Hildur Kristjánsdóttir ljósmóðir og dósent við Háskóla Íslands, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu ljósmæðra og skjólstæðinga þeirra.
  • Hjálmar Waag Árnason fyrrverandi skólameistari, þingmaður og framkvæmdastjóri Keilis, Reykjanesbæ, riddarakross fyrir forystu á vettvangi skólastarfs og menntunar.
  • Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskar tónlistar.
  • Dr. Janus Guðlaugsson íþrótta- og heilsufræðingur, Álftanesi, riddarakross fyrir framlag til eflingar heilbrigðis og íþrótta eldri borgara.
  • Jóhanna Erla Pálmadóttir verkefnastjóri og fyrrverandi framkvæmdastjóri Textílseturs Íslands, Blönduósi, riddarakross fyrir störf í þágu safna og menningar í heimabyggð.
  • Jón Ólafsson fyrrverandi prófessor, Kópavogi, riddarakross fyrir rannsóknir, fræðistörf og kennslu á sviði haffræði.
  • Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi, Reykjavík, riddarakross fyrir nýjungar í stjórnun og mannauðsmálum hjá hinu opinbera.
  • Tatjana Latinovic deildarstjóri, formaður Kvenréttindafélags Íslands og formaður Innflytjendaráðs, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til atvinnulífs, jafnréttis og málefna innflytjenda.
  • Þórður Guðlaugsson vélstjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir lífsstarf á vettvangi sjávarútvegs og björgunarafrek í mannskaðaveðri.
  • Þórunn Jarla Valdimarsdóttir sagnfræðingur og rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til sagnfræða og íslenskra bókmennta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir