Jólabasar í Skagabúð

Kvenfélagið Hekla í Skagabyggð verður með sinn árlega Jólabasar í Skagabúð sunnudaginn 1. desember nk. en þar verður ýmislegt til sölu, s.s. jólakort og pappír, gott úrval af heimaunninni vöru og handverki. Basarinn stendur yfir milli klukkan 14 og 17.

Í tilkynningu frá Heklu kemur fram að heitt súkkulaði og meðlæti verði selt á staðnum á 1000 krónur fyrir eldri en 12 ára, 500 fyrir 7-12 og frítt fyrir yngri. Hægt er að panta söluborð hjá Árnýju í síma 452 2745, en stórt borð 2000 kr. og lítið 1500kr.
„Verið hjartanlega velkomin að eiga með okkur notalega aðventustund,“ segir í tilkynningunni en athugið að ekki er hægt að greiða með greiðslukortum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir