Jólahús ársins á Blönduósi valið
Á Húnahorninu er verið að velja jólahús ársins 2010 á Blönduósi og er hægt að senda inn tilnefningu til miðnættis í kvöld, fimmtudaginn 30. desember.
Sú hefð hefur skapast á Húnahorninu í desember að velja Jólahús ársins á Blönduósi en um er að ræða samkeppni um fallega jólaskreytt hús, hvort sem það er íbúðarhús eða fyrirtækjahús. Til að taka þátt í samkeppninni er tilnefning send inn í gegnum rafrænan atkvæðaseðil sem staðsettur er á forsíðu Húnahornsins. Hverjum og einum er heimilt að senda inn eina tilnefningu. Það hús sem fær flestar tilnefningar verður valið Jólahús ársins 2010 á Blönduósi.
Í fyrra var Hlíðarbraut 4 valið Jólahús ársins.
Þetta er í níunda sinn sem Húnahornið stendur fyrir kosningu um Jólahús ársins á Blönduós.
/Húni.is
