Konukvöld Húnabúðarinnar á sunnudaginn

Húnabúðin á Blönduósi heldur árlegt konukvöld sitt nk. sunnudag, 1. desember, klukkan 20:00. Þetta er í fjórða skipti sem Húnabúðin stendur fyrir konukvöldi og hafa þau alltaf verið vel afar sótt.

Að sögn Sillu í Húnabúðinni verða ýmis tilboð í gangi á vörum og skreytingum og einnig verður boðið upp á hvítt og rautt og eitthvert snarl með. Þá verður bryddað upp á þeirri nýjung að þesssu sinni að leynigestur mætir á svæðið. Að sjálfsögðu hvílir fullkomin leynd yfir því hver hann er en þó hefur heyrst að þar sem þetta sé konukvöld sé hann örugglega karlkyns. Hvað hann svo gerir þegar hann mætir á svæðið er hins vegar allt á huldu. „En þetta snýst fyrst og fremst um að hittast og hafa gaman saman með bros allan hringinn, svo það er algjör skylda að mæta með góða skapið,“ segir Silla.  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir