Kúabændur heimsækja Brúsastaði
Síðastliðinn sunnudag fylktu kúabændur í Austur-Húnavatnssýslu liði og fóru í heimboð að Brúsastöðum í Vatnsdal en þau Sigurður og Gróa, bændur á Brúsastöðum, buðu öllum kúabændum í Félagi kúabænda í A-Hún í heimsókn.
Hugmynd kom upp um að halda þessum heimsóknum áfram og hittast oftar til skrafs og ráðagerða. Sagt er frá þessu á huni.is, í fréttatilkynningu frá Félagi kúabænda í A-Hún.
