Kynningarfundur vegna móttöku flóttamanna

Frá Blönduósi Mynd:FE
Frá Blönduósi Mynd:FE

Mánudaginn 25. febrúar er boðað til kynningarfundar á Blönduósi vegna fyrirhugaðrar móttöku flóttamanna. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst hann klukkan 20:00. 

Á fundinum munu sveitarstjóri Blönduósbæjar, fulltrúi frá Félagsmálaráðuneytinu og verkefnastjóri flóttamanna hjá Rauða krossinum kynna verkefnið fyrir fundarmönnum og svara spurningum fundarmanna.

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

  • Valdimar O Hermannsson, sveitarstjóri mun gera grein fyrir aðdraganda og stöðu málsins hjá Blönduósbæ og í Húnavatnssýslum.
  • Linda Rós Alfreðsdóttir, sérfræðingur frá Félagsmálaráðuneytinu mun kynna verkefnið og reynslu sl. tíu ára.
  • Nína Helgadóttir, verkefnastjóri flóttamannamála hjá Rauða krossinum mun segja frá hlutverki Rauða krossins á Íslandi.
  • Fyrirspurnir og umræður.  
  • Á fundinum verður m.a. óskað eftir, upplýst um og tekið á móti boðum um að gerast stuðningafjölskyldur, vegna þessa verðuga verkefnis og mun Linda Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Rauða krossins á Norðurlandi verða á fundinum og veita upplýsingar.

Íbúar Blönduósbæjar eru hvattir til að mæta á fundinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir