Laun bæjarstjóra Blönduóss hækka

Laun bæjarstjóra Blönduóssbæjar hækkuðu með nýjum ráðningarsamningi eftir kosningar í vor, öfugt við þróunina í flestum sveitarfélögum. Forseti bæjarstjórnar segir að skýringin liggi meðal annars í kröfum um aukið vinnuframlag bæjarstjórans.

Þetta kemur fram á ruv.is en í kvöldfréttum Útvarps á þriðjudag kom fram að laun nýrra sveitarstjóra séu í flestum tilfellum lægri en laun forvera þeirra og sveitarstjórnir hafi nýtt tækifærið eftir kosningar og lækkað laun um 5-15%.

Formaður Sambands sveitarfélaga, sagði þetta í takt við launalækkun og breytta stöðu sveitarfélaga eftir hrun. Á Blönduósi er þessu öfugt farið. Þar hækkaði nýr meirihluti bæjarstjórnar mánaðarlaun bæjarstjórans úr 793 þúsundum í 880 þúsund, auk þess sem biðlaunaréttur var lengdur úr fjórum í sex mánuði.

Ágúst Þór Bragason, forseti bæjarstjórnar Blönduóssbæjar, segir að þetta aukna vinnuframlag felist meðal annars í aukinni áherslu á atvinnumál. Hann segir laun bæjarstjórans verða nokkuð lægri en laun fyrir sambærileg störf í nágrannasveitarfélögunum.

Fulltrúar minnihluta bæjarstjórnar á Blönduósi gerðu athugasemdir við ráðningu bæjarstjóra þega frá henni var gengið í júní og sátu hjá þegar borin var upp tillaga þar um.

Oddný María Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi minnihluta segist ósammála því að hækka hafi þurft laun bæjarstjórans í samanburði við launin í nágrannasveitarfélögum. Hún segir líklegt að þetta mál verði tekið til umræðu þegar bæjarstjórn kemur saman eftir sumarleyfi í september.

/ruv.is

Fleiri fréttir