Laxinn genginn í Blöndu

Laxinn er genginn í Blöndu, þrátt fyrir erfið skilyrði vegna mikils og gruggugs vatns. Á Húnahorninu er haft eftir Höskuldi B. Erlingssyni, leiðsögumanni í Blöndu, að hann hafi séð lax reisa sig í gær, í Damminum, sem er veiðistaður rétt fyrir ofan Breiðuna á svæði 1. Segir Höskuldur að um sé að ræða nýgenginn lax, 12-14 pund.

Veiði hefst á svæði 1 í Blöndu á miðvikudaginn en laxveiði á svæðum tvö til fjögur hefst 20. júní.

Fleiri fréttir