Leikskólum í Austur Húnavatnssýslu færðir Leikum og lærum með hljóðin

Þórdís Hauksdóttir fræðslustjóri og Sigrún Líndal ráðgjafi. Mynd af felahun.is.
Þórdís Hauksdóttir fræðslustjóri og Sigrún Líndal ráðgjafi. Mynd af felahun.is.

Í tilefni af 30 ára starfsafmæli Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings færði hún nýverið öllum leikskólum í Austur Húnavatnssýslu málþjálfunarefnið Leikum og lærum með hljóðin. Efnið byggir á fagþekkingu talmeinafræðinnar og áratuga reynslu Bryndísar í starfi með íslenskum börnum.

Á heimasíðu Félags- og skólaþjónustu A-Hún kemur fram að Lærum og leikum með hljóðin sé námsefni sem styður með ýmsu móti við læsi og hljóðnám og leggur grunn að lestrarnámi barna. Í gjafapoka til skólanna er efni til að þjálfa framburð, hljóðkerfisvitund og þekkingu á bókstöfum, orðaforða og hugtakaskilning. Þá fylgir einnig aukaefni eins og púsl, límmiðar og vinnusvuntur, sem styðja við hljóðanámið með fallegum stafamyndum.  Einnig fylgja með gjöfinni fimm íslensk smáforrit fyrir ipad. Efnið hefur hlotið ýmsar viðurkenningar.

Efnið er gefið í samstarfi við Marel, Lýsi, Ikea og hjónin Björgólf Thor og Kristínar Ólafsdóttur auk Raddlistar sem er fyrirtæki í eigu Bryndísar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir