LífsKraftur, bók fyrir ungt fólk með krabbamein, endurútgefin

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, hefur endurútgefið bókina LífsKraftur í algjörlega nýrri mynd. Bókina fá allir þeir sem greinast með krabbamein og eru á aldrinum 18-45 ára, afhenta, sér að kostnaðarlausu, en einnig liggur hún frammi á öllum sjúkrahúsum landsins. Haldið var upp á útgáfuna sl. mánudag, 4. febrúar, á alþjóðlegum degi gegn krabbameinum ,með útgáfuhófi á Kaffi Flóru. 

Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að fjölmennt hafi verið í hófinu og meðal gesta var frú Vigdís Finnbogadóttir, verndari Krabbameinsfélags Íslands, en Kraftur er einmitt eitt af aðildarfélögum þess.

„LífsKraftur hefur fengið þvílíka andlitslyftingu“, sagði Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Krafts í útgáfuteitinu. „Bókin kom fyrst út árið 2003 en þar sem Kraftur er 20 ára í ár ákváðum við að endurskrifa hana með það í huga að hún höfðaði betur til ungs fólks, gera hana myndrænni og láta hana svara auðveldlega spurningum sem koma upp í huga fólks þegar það greinist með krabbamein eða þegar ástvinur greinist. Undirtitill bókarinnar hittir beint í mark þó hann sé vissulega ögrandi líka en hann er Fokk ég er með krabbamein sem er jú kannski fyrsta hugsunin sem kemur upp þegar maður fær svona fréttir“, sagði Hulda enn fremur.

LífsKraftur inniheldur hagnýtar upplýsingar fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur þeirra og vini. Tilgangur þessarar útgáfu er að safna saman á einn stað upplýsingum, fræðsluefni og bjargráðum sem koma að gagni fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur. Allir sem greinast með krabbamein á aldrinum 18-45 ára og fjölmargir fleiri fá bókina afhenta sér að kostnaðarlausu en hún liggur einnig frammi á öllum spítölum landsins. Einnig er bókin inn á vefsíðu Krafts, www.kraftur.org.

Heilbrigðisstofnanir og aðrir geta sett sig í samband við Kraft til að fá bókina senda til sín.

Allar nánari upplýsingar veitir Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Krafts í síma 866-9600 eða í tölvupósti hulda@kraftur.org

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir