Ljón Norðursins
Þá sem vantar gistingu í lengri eða skemmri tíma þurfa ekki að örvænta þegar komið er á Blönduós. Þar er nú hægt að fá gistingu víða. Einn er sá staður á bökkum Blöndu sem Blönduból kallast. Þar rekur Jónas Skaftason gistiheimili og kaffihús. Jónas bíður upp á gistingu í 3 smáhýsum, kaffi og bar í Ljóni Norðursins en einnig mun Jónas opna tjaldstæði á Einarsnesi og hyggst vera með útimarkað á sama stað í sumar.
Í samtali við Jónas, býður hann einnig upp á skemmtilegar ferðir í sela- og náttúruskoðun út á Skaga. Hann kallar það "Göngum á vit fortíðar í Kálshamarsvík".
/Húni.is
