Ljósmyndasýning á Skagaströnd
Vigdís H. Viggósdóttir sýnir 12 mynda seríu sem nefnist SAMRUNI. Ljósmyndasýningin er utanhúss á austurvegg Hafnarhússins á Skagaströnd og stendur til hausts, en Vigdís útskrifaðist nýverið úr Ljósmyndaskólanum.
Á vef Skagastrandar segir Vigdís verkið hafa komið til eftir að hún hafi farið að rýna í ruslið á ruslahaugunum og séð hvernig það var farið að renna saman við náttúruna, mosi og annar gróður farinn að taka sér bólfestu í því. Náttúran myndi að lokum sigrast á þessum óhroða.
Ferlinu er líst með 8 orðum sem öll byrja á S (sjá spjöld á sýningu) en einungis 8 orð þurfti til að segja þessa sögu, auk þess er talan 8 vísun í eilífðartáknið, þar sem náttúran endurtekur sig, hringrás með eilítið breyttri ásýnd í hverri umferð, en óslitin.
