Mamma Mía á fjalir Bifrastar - Falleg sýning og bráfyndin

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra frumsýnir söngleikinn heimsfræga Mamma mía í Bifröst Sauðárkróki föstudaginn 22. nóvember nk. klukkan 20:00. Með hlutverk Donnu fer Rannveig Sigrún Stefánsdóttir, Helena Árnadóttir leikur Sophie og svo eru það pabbarnir, þeir Sam, Bill og Harry en með hlutverk þeirra fara Sæþór Már Hinriksson, Eysteinn Guðbrandsson og Ásbjörn Waage.

Mynd: Pétur Guðjónsson, leikstjóri. Aðsend mynd.

„Verkið er að hluta til byggt á þessari sögu og kvikmynd sem við þekkjum en þó er hér um nýja leikgerð að ræða. Leikverkið heitir: Saga Donnu Sheridan-Mamma mía og segir frá ástum og örlögum Donnu og svo Sophie dóttur hennar. Þarna er því sú þekkta, með þekktum lögum, sem við þekkjum en töluverðar breytingar gerðar sem við teljum til góðs. Svo er þarna fullt af frábærri tónlist sem bæði er acustic og af playback þannig að fjölbreytnin er mikil,“ segir Pétur Guðjónsson, leikstjóri.

Aðspurður um við hverju áhorfendur megi búast í Bifröst, segir Pétur: „Fallegri sýningu og mér sýnist stefna í að hún verði mjög vel leikin. Krakkarnir taka þessu svo alvarlega að útkoman hlýtur að verða góð. Það er fullt af fallegum atriðum en það er líka fjör og í gegnum þetta allt er sýningin bráðfyndin. Við erum ekkert að reyna að vera það, það bara gerist. Þau standa sig mjög vel, leggja mikla vinna á sig til að gera alvöru sýningu. Sæþór, Helena, Rannveig og Eysteinn eru mikið að sjá um raddanir og þarna hjálpast allir að. Svo er það Bergljót Ásta Pétursdóttir sem er aðstoðarleikstjóri og hún er algjörlega frábær, eins og reyndar allir í þessum hóp.

Nú ert þú að leikstýra hjá Fjölbraut og nýbúinn að leikstýra hjá Leikfélagi Sauðárkróks, ertu fluttur á Krókinn?
„Sko ég er ekki búinn að flytja lögheimilið en ég er meira á Króknum en heima á Akureyri. Það hefur nú gengið á ýmsu í þessu ferli, ein sjúkrahúsvist hjá mér, sem var ekki alveg það sem við þurftum á þessum stutta tíma sem við höfum. En ég get staðfest það að starfsfólkið á sjúkrahúsinu hér á Króknum er alveg dásamlegt.“ 

Pétur hvetur alla til að fara á sýninguna þar sem allt er lagt undir. „Við leggjum hjartað á sviðið fyrir áhorfendur og vonum að upplifunin verði í samræmi við það. Ég kveð svo Krókinn í bili - en ég kem aftur og hlakka til.“ 

Miðapantanir fara fram í síma: 455-8070 frá og með miðvikudeginum 20. nóvember en hægt verður að panta frá 15:00-17:00 virka daga en 11:00-14:00 um helgar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir