Minningarmót Evu Hrundar – Opið kvennamót hjá Golfklúbbnum Ós á Blönduósi
Minningarmót Evu Hrundar fer fram sunnudaginn 9. júlí nk. á Vatnahverfisvelli.
Mótið er opið kvennamót og er á vegum Golfklúbbsins Óss á Blönduósi. Mæting er kl. 09:30 og ræst verður út af öllum teigum kl. 10:00.
Verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin og keppt verður í þremur flokkum:
- -28,0 – 18 holur
- +28,1 – 18 holur
- +28,1 – 9 holur
Nándarverðlaun á tveimur par 3 brautum (á flöt), ásamt því að dregið verður úr skorkortum viðstaddra í lokin.
Mótsgjald er 5000 kr. og innifalið í því er vöfflukaffi að móti loknu.
Skráning í Golfbox fyrir kl. 18:00, laugardaginn 8. júlí.
/Fréttatilkynning