Morgunverðarfundur: Jarðvegsmengun – áskoranir, launir og nýting auðlindar -- Uppfært

Á morgun fimmtudaginn 16. mars  kl. 9 hefst morgunfundur Verkís sem ber yfirskriftina Jarðvegsmengun – áskoranir, lausnir og nýting auðlindar. Þar munu þrír fyrirlesarar auk fundarstjóra og sérfræðingur Verkís flytja erindi. Fundurinn stendur til kl. 10.30.

Meðal þess sem þau velta fyrir sér er:

  • Að hverju þarf að huga þegar iðnaðarsvæði líkt og Ártúnshöfða er breytt í íbúasvæði og vitað er að þar hefur verið mengandi starfsemi um áratuga skeið?
  • Er vitað hvar á landinu er að finna mengaðan jarðveg?
  • Miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar hjá ISAVIA á Keflavíkurflugvelli. Þar gæti jarðvegur mögulega verið mengaður vegna fyrri starfsemi. Að hverju þarf að huga í því samhengi?
  • Hvaða áskoranir takast ráðgjafar við í mengunarverkefnum á Íslandi og hvernig er hægt að meðhöndla mengaðan jarðveg?

Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Verkís í Ofanleiti 2 í Reykjavík en einnig verður boðið upp á streymi.

Efni fundarins:

Leiðbeiningar, kortasjá og ábendingavefur – Kristín Kröyer, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Kristín kynnir stuttlega nýútgefnar leiðbeiningar stofnunarinnar um mengaðan jarðveg, kortasjá sem sýnir menguð svæði á landinu ásamt ábendingavef þar sem almenningi gefst kostur á að senda inn upplýsingar um menguð svæði.

Mengunarrannsóknir ráðgjafans – verkferlar, áskoranir og lausnir – Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, doktor í umhverfis- og jarðefnafræði hjá Verkís. Markvissar mengunarrannsóknir þar sem farið er eftir alþjóðlegum „best practice“ aðferðum gefa skýrari mynd af stöðu mála. Erla Guðrún kynnir verkferla mengunarráðgjafans, þær áskoranir sem birtast í íslenskum verkefnum og ræðir um mögulegar lausnir til meðhöndlunar á menguðum jarðvegi.

Þetta er bara smá olía, gerir engum mein – Guðjón Ingi Eggertsson, heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Guðjón mun koma inn á áskoranir sem eru vegna breytinga á landnotkun í skipulagi og uppbyggingu sem fylgir í kjölfarið. Dæmi um slíkt er Ártúnshöfði í Reykjavík þar sem verið er að breyta landnotkun svæðisins, þ.e. úr iðnaðarsvæði í íbúahverfi sbr. aðalskipulag Reykjavíkur sem gildir til 2040.
Vitað er að á svæðinu hefur verið mengandi starfsemi og má þar nefna framleiðsla á svokölluðum skarna sem var notaður sem áburður, en honum fylgdu ýmis mengandi efni s.s. plast og gler, bílaverkstæði og annar bílaiðnaður, malbikunarstöð, steypustöðvar o.fl. Gera þarf rannsóknir á mengun í jarðvegi og útbúa áætlun um hvernig eigi að bregðast við með hreinsun eða förgun jarðvegs til að svæðið uppfylli viðmið fyrir íbúðarsvæði sbr. reglugerð um mengaðan jarðveg.

Leifar fortíðar, áskoranir framtíðarinnar – Gunnhildur Ingibjörg Georgsdóttir, sérfræðingur hjá Isavia. Í þeim miklu framkvæmdum sem fyrirhugaðar eru á Keflavíkurflugvelli stendur Isavia frammi fyrir töluverðum áskorunum vegna mögulegrar jarðvegsmengunar sem á sér uppruna vegna fyrri starfsemi. 
Huga þarf að lagalegum sem og samfélagslegum kröfum og réttri meðferð mengaðs jarðvegs og leita lausna ef hún er ekki til staðar í samstarfi við viðeigandi aðila.

Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, sér um fundarstjórn.

Viðburðurðinn má finna á Facebook: Morgunverðarfundur - Jarðvegsmengun | Facebook en einnig hægt að fylgjast með fundinum í gegnum Teams: https://bit.ly/3kWtUc4

--------

Uppfært: Áður en það var lagfært sagði í fréttinni að fundurinn yrði haldinn í dag, miðvikudag. Hann ver fram á morgun fimmtudaginn 16. mars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir