Mótmæla skertri þjónustu Arion banka á Blönduósi
Í ályktun frá sveitarstjórn Blönduósbæjar er skertri þjónustu Arion banka á Blönduósi mótmælt harðlega en bankinn stytti opnunartíma útibúsins á dögunum.
Í samþykkt sveitarstjórnarfundar frá 7. júní síðastliðnum segir: „Í stefnu bankans um samfélagsábyrgð stendur að bankinn setji sig í spor viðskiptavina og leitist stöðugt við að gera betur í dag en í gær og getur sveitarstjórn ekki séð að boðaðar breytingar samræmist þessari stefnu.“
Frá og með 5. júní síðastliðnum var opnunartími bankans styttur en bankinn er nú opinn frá klukkan 10-12 og 12:30-15 alla virka daga. Áður var opið frá 9-12 og 12-16 virka daga.
/Lee Ann