Mýrarbraut 35 er Jólahús ársins 2010 á Blönduósi

Lesendur Húnahornsins hafa valið Mýrarbraut 35 sem Jólahús ársins 2010 á Blönduósi. Húsið er ríkulega og fallega skreytt jólaljósum og hefur það vakið athygli bæjarbúa. Fjölmörg hús fengu tilnefningar en eitt skaraði fram úr og var það Mýrarbraut 35.

Á Húna.is segir að Ásdís Arinbjörnsdóttir og Þórður Pálsson séu eigendur Mýrarbrautar 35 og að þau megi eiga von á fulltrúa Húnahornsins næstu daga með viðurkenningu fyrir valið. 

Þetta er í níunda sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á Jólahúsi ársins á Blönduósi.

/Húni.is

Fleiri fréttir