Ný stjórn kjörin á bæjarstjórnarfundi í gær
Ný stjórn var kjörin á bæjarstjórnarfundi Blönduósbæjar í gær en þá fóru fram kosningar samkvæmt samþykktum Blönduósbæjar. Þá var Ágúst Þór Bragason kjörinn forseti bæjarstjórnar á ný, Kári Kárason 1. varaforseti og Þórdís Hauksdóttir 2. varaforseti.
Í fundargerð kemur fram að kjör hafi einnig farið fram á þremur aðalfulltrúum og þremur varafulltrúum í bæjarráð Blönduósbæjar. Aðalmenn eru Zophonías Ari Lárusson af L-lista, Anna Margrét Sigurðardóttir af L-lista og Oddný María Gunnarsdóttir af S-lista. Varamenn eru Kári Kárason af L-lista, Hilmar Þór Hilmarsson af L-lista og Þórdís Hauksdóttir af S-lista.
Á fundinum var jafnframt gerð breyting á aðalmanni í stjórn b.s.Félagsþjónustunnar og inn kemur Ágúst Þór Bragason í stað Zophoníasar Ara Lárussonar.
