Nýársfagnaður Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps og Rökkurkórsins um helgina
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
08.01.2019
kl. 09.01
Sameiginlegur nýársfagnaður Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps og Rökkurkórsins fer fram nk. laugardag, 12. janúar, í Húnaveri. Á dagskrá er kvöldverður, kórsöngur, skemmtiatriði og dansleikur með Geirmundi Valtýssyni.
Hátíðin er opin utan kóranna og geta áhugasamir tekið þátt og skráð sig hjá Höskuldi í síma 849 8710, Pétri 821 4349 eða Valborgu 869 8108. Miðaverð er 6000 kr. en enginn posi er á staðnum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.