Nýr aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson , formaður Miðflokksins hefur ráðið nýjan aðstoðarmann. Hann heitir Jón Pétursson, fæddur 1971, stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1991.
Jón lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1994, hann var stýrimaður til margra ára og er einn af stofnendum Miðflokksins. Jón er giftur og á einn son og býr í Mosfellsbæ.
/Fréttatilkynning.