Nýr og ferskur Feykir kominn út

Nýr Feykir vikunnar hefur litið dagsins ljós en þar má finna ýmislegt gagnlegt og gott. Til að mynda er viðtal við Sigurð Guðjónsson, gjarnan kenndur við Sjávarborg í Skagafirði, en hann lét af störfum eftir 43 ára starf hjá KS og tengdum fyrirtækjum nú um mánaðamótin. Merkilegt þykir að þrír ættliðir náðu að vinna saman á Vélaverkstæðinu en þeir feðgar Þorgeir sonur Sigga og Jóhann Þór sonarsonur unnu með honum sl. ár.

Kristinn Hugason skrifar um hesta og menn og er íslenska gæðingakeppnin tekin fyrir á ný en talið er að fyrsta keppnin hafi farið fram 1944. Birta Þórhallsdóttir, á Hvammstanga skrifar áskorendapistil vikunnar og vísnaþátturinn er á sínum stað. 
Arnþrúður Heimisdóttir, túristabóndi og hrossaræktandi, svarar spurningum Bók-Haldsins en hún segir að bækur, líkt og eðalvín og sérvitringar, batni með árunum.
Bændurnir á Þambárvöllum í Bitrufirði, Stefanía og Magnús, eru matgæðingar og gefa uppskrift að góðum fiskrétti og afar einföldu brauði.
Þá er Sibbi mættur með Mini-inn sinn en það tók nokkur ár að dubba hann upp, hagyrðingurinn Einar Kolbeins tekinn tali og myndir Róberts Daníels prýða baksíðuna.

Fríða Eyjólfs ritar leiðarann en þar eru á borð borin athyglisverðar samkomubannsspekúlasjónir. Rætt er við Ásgeir Braga, Ouse, en hann gerir það heldur betur gott í músíkinni og er tónllist hans sótt 1,4 milljón sinnum á Spotify á mánuði. Minningargrein um Álf Ketilsson er einnig að finna í blaðinu, aðsend grein Bergþors og Sigurðar Páls Miðflokksþingmanna og að sjálfsögðu eru fréttir sagðar af öllu Norð-vestur svæðinu. Að lokum má nefna að stórlygarinn Jón tófusprengur á síðasta orðið að þessu sinni.

Hægt er að gerst áskrifandi HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir