Nýr umsjónarmaður dreifnáms FNV á Hólmavík
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
11.08.2014
kl. 11.57
Eiríkur Valdimarsson hefur verið ráðinn umsjónarmaður dreifnáms FNV á Hólmavík í stað Hrafnhildar Guðbjörnsdóttur, sem tekið hefur við starfi skólastjóra Grunnskólans á Hólmavík.
Eiríkur er þjóðfræðingur að mennt og hefur m.a. starfað við kennslu við Grunnskólann á Hólmavík auk kennslu við Háskóla Íslands.
Fleiri fréttir
-
Stjörnumenn betri í baráttuleik í Síkinu
Lið Tindastóls og Stjörnunnar mættust í hörkuleik í Síkinu í gær og voru neglur nagaðar fram á síðustu sekúndu og jafnvel lengur. Líkt og stundum áður þegar þessi lið mætast þá fóru Stólarnir vel af stað, Stjarnan kom svo sterk inn og var í raun með undirtökin mest allan síðari hálfleik. Átján sinnum skiptust liðin á um að hafa forystuna og níu sinnum var allt hnífjafnt. Það voru hins vegar gestirnir sem voru yfir þegar það skipti öllu máli – í leikslok – og unnu því fyrsta bardagann í einvígi liðanna. Lokatölur 95-96.Meira -
Björgvin Þ. og Óskar P. gefa út lag
Félagarnir Óskar Pétursson og Björgvin Þ. Valdimarsson eru að gefa út nýtt lag sem heitir „Það varst þú“ en þetta er nýjasta lag Björgvins og textinn er einnig eftir hann . Óskar og Björgvin Þ. hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina en á fyrsta diski Björgvins söng Óskar m.a. lögin Undir Dalanna sól, Kveðju heimanað og Mátt söngsins, auk lagsins Stúlkan mín sem Álftagerðisbræður sungu. Síðan gáfu þeir félagar út diskinn Allt sem ég er, árið 2009 en á þeim diski var Óskar aðalsöngvari. Á diskinum sungu þrír gestasöngvarar m.a. Björgvin Halldórsson en hann og Óskar sungu saman titillag disksins.Meira -
LM2026 og HorseDay innsigla samstarf sumarsins
Það styttist í landsmótið á Hólum en það verður haldið 5. – 11. júlí. Eitt af því sem er nauðsynlegt á nútímamótum er miðlun upplýsinga en þar kemur HorseDay sterkt inn. Smáforritið HorseDay hefur verið í mikilli þróun síðustu árin og sér HorseDay alfarið um niðurstöður hestamóta hérlendis. HorseDay hefur tekið við af gömlu góðu Landsmótskránni sem ekki er lengur gefin út á prenti en í smáforritinu er hægt að finna allar upplýsingar um landsmótið á einum stað. Síðan er skemmtilegur möguleiki að áhorfendur geta tekið beinan þátt með því að gefa einkunnir í forritinu og borið saman við einkunnir dómara.Meira -
Undanúrslitin í körfunni hefjast í Síkinu í kvöld
Undanúrslitin í Bónus deild karla í körfubolta hefjast í kvöld þegar Íslandsmeistarar Stjörnunnar heimsækja Síkið. Þar bíða eftir þeim úthvíldir Tindastólsmenn og væntanlega klikkuð stemning. Partýtjaldið tekur á móti gestum frá kl. 17:00 í dag en þá er gert ráð fyrir vægri vestanátt, sólskini og tíu stiga hita – en hann verður örugglega miklu meiri í tjaldinu. Leikurinn hefst svo kl. 19:15 en húsið verður opnað kl. 18:00.Meira -
Það eru forréttindi að búa í Skagafirði | Sigurður Bjarni Rafnsson skrifar
Það eru forréttindi að búa í Skagafirði – það segi ég af eigin reynslu. Við fluttum hingað ég og hún Ingibjörg mín árið 2003, en hún starfar sem hjúkrunarfræðingur hjá HSN. Við vorum full væntinga um nýtt líf og ný tækifæri. Í dag, rúmum tveimur áratugum síðar, lít ég til baka með þakklæti. Hér höfum við alið upp þrjú börn sem hafa fengið að njóta þess að vaxa og dafna í öruggu og góðu samfélagi – frá leikskóla og upp úr. Hafa börnin okkar öll útskrifast hér úr framhaldsskólanum það er virkilega dýrmætt og eiginlega bara forréttindi að hafa þennan munað hér í firðinum fallega að börnin geti klárað skólagöngu sína heima.Meira
