Öllum sagt upp

Öllu starfsfólki hjá fiskvinnslunni Sæmá á Blönduósi hefur verið sagt upp eða 12 manns. Uppsögnin tekur gildi 1. nóvember. Rúv greindi frá þessu sl. föstudag.

Fyrirtækið Sæmár er dótturfélag Norðurstrandar á Dalvík og er eina fiskvinnslan á Blönduósi. Að sögn Guðmundar Stefáns Jónssonar, framkvæmdastjóra Sæmás og Norðurstrandar, er ástæða uppsagnanna óvissa í rekstrarumhverfi. Þá sagði hann fyrirtækið vera kvótalaust og hafi keypt allan fisk á markaði og eins sé óvissa um byggðakvóta.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að loka Sæmá, en að sögn Guðmundar eru uppsagnirnar varúðarráðstöfun á meðan verið er að meta stöðuna.

Fleiri fréttir