Opið hús í Nesi listamiðstöð
Listamenn hjá Nes listamiðstöð opna vinnustofur sínar í lok hvers mánaðar þar sem þeir sýna þau verk sem þeir hafa verið að vinna að frá komu sinni.
Fimmtudaginn 17. desember verður opið hús hjá Nesi Listamiðstöð frá klukkan 18 til 21. Listamenn mánaðarins eru Oliver Gardiner, vídeó, Di Ball, gjörningar og blönduð tækni, Elizabeth Tubergen, blönduð tækni og Elizabeth Mead, skúlptúr.
Við hvetjum alla til að koma í heimsókn og skoða listaverk í vinnslu sem og spjalla við listamennina um verkin og dvölina á Skagaströnd.
Fréttatilkynning
