Örmagna ferðamaður sóttur á Vatnsrásarhöfuð

Björgunarfólk á leið til aðstoðar í gær. Aðsend mynd.
Björgunarfólk á leið til aðstoðar í gær. Aðsend mynd.

Síðdegis í gær, fimmtudag, óskuðu tveir ferðamenn sem voru á ferð að eða frá íshelli í Kötlujökli eftir aðstoð, þar sem annar þeirra hafði örmagnast á göngunni. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að fólkið hafi verið statt á Vatnsrásarhöfði, rétt norður af Remundargilshöfði, þar sem liggur þekkt gönguleið úr Þakgili að Kötlujökli.

Björgunarsveitir á svæðinu frá Vík og austur á Kirkjubæjarklaustur voru boðaðar út og héldu til aðstoðar og segir í tilkynningunni að fólkið hafi fundist á gönguleiðinni rétt um 18 klukkan og fengið aðstoð niður að björgunarsveitarbíl.

Ferðamennirnir voru svo keyrðir inn í Þakgil, þar sem þeir höfðu skilið bíl sinn eftir við upphaf gönguferðar. Þeir þurftu ekki frekari aðstoð og lauk því aðgerðinni þar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir