Óskað eftir sveitarstjóra í Húnavatnshreppi
Húnavatnshreppur auglýsir eftir sveitarstjóra á heimasíðu sinni. Starfið innifelur daglegan rekstur sveitarfélagsins, yfirumsjón með bókhaldi og áætlanagerð, vinna með og fylgja eftir ákvörðunum sveitarstjórnar. Gæta hagsmuna sveitarfélagsins út á við og annast samskipti við stofnanir, fyrirtæki, samtök og íbúa. Umsóknarfrestur er til 7. júlí 2014.
Menntunar og hæfniskröfur eru reynsla af rekstri og stjórnun. Góð bókhaldskunnátta er skilyrði. Þjónustulund, skipulögð vinnubrögð og hæfni í mannlegum samskiptum. Jafnframt er háskólamenntun og þekking á málefnum sveitarfélaga æskileg. Að sama skapi frumkvæði til að takast á við uppbyggingu sveitarfélagsins
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist til oddvita Húnavatnshrepps Þorleifs Ingvarssonar, Sólheimar 541 Blönduós og veitir hann jafnframt frekari upplýsingar um starfið. símar. 452-7150/893-4006 netfang: solheim@emax.is.
