Ræsing Húnaþinga og Skagafjarðar

Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir tveimur verkefnum þar sem efnt er til samkeppni um góðar viðskiptahugmyndir fyrir Norðurland vestra. Annað verkefnið nefnist Ræsing Húnaþinga og er framkvæmt í samvinnu við sveitarfélög í Húnaþingum og hitt Ræsing Skagafjarðar og er í samvinnu við Sveitarfélagið Skagafjörð og Kaupfélag Skagfirðinga.

Þátttakendur fyrrnefnda verkefnis fá 12 vikur til að vinna viðskiptaáætlun fyrir verkefnin sín en á þeim tíma fá aðstandendur verkefnanna fræðslu og  mikinn stuðning verkefnisstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar auk fleirum við gerð viðskiptaáætlunarinnar og hugsanlega við vöruþróun og frumgerðasmíði.

Í ræsingu Skagafjarðar fá þátttakendur 10 vikur til að vinna viðskiptaáætlun fyrir verkefnin sín og fá sömu fræðslu og aðstoð við verkefni sín. Boðið verður m.a. upp á námskeið við gerð viðskiptaáætlana.

Allir geta sótt um þátttöku í verkefninu sem leggur áherslur á viðskiptahugmyndir sem; 

Eru atvinnuskapandi á svæðinu
Eru nýsköpun á svæðinu á einn eða annan hátt
Auka framboð á atvinnu fyrir fólk með háskólamenntun
Sem eru ekki í beinni samkeppni við önnur fyrirtæki á svæðinu
Með einstakling eða teymi bak við hugmyndina sem er hæft og tilbúið að vinna að hugmyndinni
Eru tæknilega framkvæmanlegar á þessum tímapunkti
Hafa raunverulegan markhóp sem hægt er að sækja á, innanlands eða erlendis
Nánar má fræðast um verkefnin á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöð Íslands eða:

Ræsing Húnaþinga

Ræsing Skagafjarðar

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir