REKO afhendingar á Blönduósi og Sauðárkróki

Vörur afhentar á Blönduósi. Mynd:FE
Vörur afhentar á Blönduósi. Mynd:FE

REKO afhendingar verða á Blönduósi og Sauðákróki á morgun, fimmtudaginn 7. maí, en þar geta neytendur pantað vörur milliliðalaust frá hinum ýmsu framleiðendum á svæðinu. Markmiðin með REKO eru m.a. að koma upp sölu- og dreifingarkerfi sem sparar tíma og peninga, að auka viðskipti með vörur úr héraði og efla nærsamfélagsneyslu og gera matarhandverki og heimavinnslu hærra undir höfði.

Viðskiptin fara þannig fram að á Facebook er að finna hópinn REKO Norðurland og þurfa áhugasamir að sækja um inngöngu þar til þess að geta pantað vöru. Framleiðendur kynna þá vöru sem í boði er á hverjum stað fyrir sig og neytendur leggja inn pöntun og greiða fyrir vöruna áður en afhendingin fer fram.

Meðal þess sem er á boðstólum er gott úrval af kjöti, andar- og hænuegg, broddur, sultur, pestó, hunang og ýmislegt fleira.

Afhendingar að þessu sinni verða sem hér segir:

  • Á Blönduósi á bílaplani við Húnabúð, fimmtudaginn 7. maí klukkan 12:00-12:30.
  • Á Sauðárkróki á bílaplani hjá N1 í Ábæ, fimmtudaginn 7. maí klukkan 17:00-17:30.

Í dag, miðvikudag, eru síðustu forvöð að leggja inn pöntun.

Hægt er að afla sér nánari upplýsinga um REKO og sölufyrirkomulagið á slóðunum  https://mataraudur.is/reko-a-islandi/ og https://mataraudur.is/reko-algengar-spurningar-og-svor-fyrir-framleidendur/.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir