Réttir á Norðurlandi vestra

Hvammsrétt er ný fjárrétt í Langadal. Þar er tekið við fé til réttar sem smalað er úr Langadalsfjalli. Blönduósbær byggði réttina og var smíði hennar í höndum Halldórs Skagfjörð frá Fagranesi. Mynd: Róbert Daníel Jónsson.
Hvammsrétt er ný fjárrétt í Langadal. Þar er tekið við fé til réttar sem smalað er úr Langadalsfjalli. Blönduósbær byggði réttina og var smíði hennar í höndum Halldórs Skagfjörð frá Fagranesi. Mynd: Róbert Daníel Jónsson.

Göngur og réttir eru nú framundan, tími þar sem mikið er um að vera og í nógu að snúast í sveitum landsins. Fyrstu réttirnar á Norðurlandi vestra eru afstaðnar því segja má að bændur í Blöndudal hafi tekið forskot á sæluna með því að rétta í Rugludalsrétt sl. laugardag og einnig var réttað í Hvammsrétt og í Beinakeldurétt á sunnudag. Um næstu helgi verður svo smalað víða um sveitir og réttað á fjölmörgum stöðum á svæðinu, bæði þá og um næstu helgi á eftir.

Feykir hefur tekið saman lista yfir réttir á Norðurlandi vestra sem unninn er upp úr Bændablaðinu. Þar er tekið fram að villur geti alltaf slæðist inn í lista af þessu tagi og eins geti veðráttan átt þátt í að breyta fyrirætlunum varðandi göngur og réttir. Það er alltaf gaman að skoða myndir úr réttum og þætti Feykir því vænt um ef lesendur sendu blaðinu myndir til birtingar.

Húnaþing vestra
Hamarsrétt á Vatnsnesi              laugardag 14. sept.
Hrútatungurétt í Hrútafirði          laugardag 7. sept. kl. 9:00.
Hvalsárrétt í Hrútafirði                 laugardag 14. sept. kl. 13:00.
Miðfjarðarrétt                                laugardag 7. sept. kl. 9:00.
Valdarásrétt í Fitjárdal                 föstudag 6. sept. kl. 9:00.
Víðidalstungurétt í Víðidal           laugardag 7. sept. kl. 10:00.
Þverárrétt í Vesturhópi                 laugardag 14. sept. 

Austur-Húnavatnssýsla
Auðkúlurétt við Svínavatn           laugardag 7. sept. kl. 8:00.
Beinakeldurétt                              sunnudag 1. sept. kl. 9:00.
Fossárrétt                                      laugardag 7. sept.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð        sunnudag 8. sept. kl. 16:00.
Kjalarlandsrétt                              laugardag 7. sept.
Rugludalsrétt í Blöndudal           laugardag 31. ágúst kl. 16:00.
Skrapatungurétt í Laxárdal         sunnudag 8. sept. kl. 9:00.
Stafnsrétt í Svartárdal                 laugardaginn 7. sept. kl. 8:30.
Sveinsstaðarétt                            sunnudag 8. sept. kl. 10:00.
Undirfellsrétt í Vatnsdal              föstudag 6. sept. kl. 12:30 og laugardag 7. sept kl. 9:00. 

Skagafjörður
Árhólarétt í Unadal                       laugardag 14. sept. um kl. 14:00.
Deildardalsrétt                              laugardag 7. sept.
Flókadalsrétt í Fljótum                sunnudag 15. sept.
Hlíðarrétt í Vesturdal                   sunnudag 15. sept.
Hofsrétt í Vesturdal                     laugardag 14. sept.
Holtsrétt í Fljótum                        laugardag 14. sept.
Hraunarétt í Fljótum                    föstudag 6. sept.
Kleifnarétt í Fljótum                     laugardag 7. sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal             sunnudag 8. sept.
Mælifellsrétt                                 sunnudag 8. sept.
Sauðárkróksrétt                           laugardag 7. sept.
Selnesrétt á Skaga                      laugardag 7. sept. – seinni réttir laugardag 14. sept.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð        mánudag 9. sept.
Skarðarétt í Gönguskörðum      sunnudag 8. sept. kl. 10:00
Skálárrétt í Sléttuhlíð                   laugardag 14. sept.
Staðarrétt                                      sunnudag 8. sept.
Stíflurétt í Fljótum                        föstudag 13. sept.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir