„Sagan sem síðast var rituð“ komin út
Búið er að gera bók um Þórdís spákonu sem kallast „Sagan sem síðast var rituð.“ Þórdísar er getið í Landnámu og því fyrsti nafntogaði Skagstrendingurinn sem gæti hafa numið land á Skagaströnd.
Á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagastrandar má finna lýsingu á bókinni:
„Í formála bókarinnar er gerð grein fyrir þeim sagnabrotum sem stuðst var við þegar sagan var rituð. Þar kemur fram að álykta megi að Þórdís hafi verið kvenskörungur mikill og sýnt rausn og skörungsskap í hvívetna. Hún hafi ýmist verið talin hin mesta fordæða, framsýn og fylgin sér, sáttasemjari eða fjölkunnug og búin mikilli spádómsgáfu. Ráðist hafi verið í ritun þáttar um æfi Þórdísar til að bæta fyrir sleggjudóma sögualdar. Með ritun sögu Þórdísar sé reynt að draga fram kosti hennar ekki síður en galla og sýna fram á áhrif er hún hafði í héraðinu.“
Höfundar bókarinnar eru Dagný Marín Sigmarsdóttir, Svava G. Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir og hana er hægt að nálgast í Spákonuhofinu á Skagaströnd.
