Samfylking og óháðir fengu flest atkvæði á Skagaströnd
Kjörstað í sveitarfélaginu Skagaströnd var lokað kl. 21 og þar hafa öll atkvæði verið talin. Á kjörskrá voru 352 og var kjörsókn 88,1%. Þrír listar voru í boði og varð niðurstaðan sú að S-listi Samfylkingar og óháðra hlaut 43,3% atkvæða, K-listi Fyrir Skagaströnd 40,0% og B-listi Framsóknar og óháðra hlaut 16,7%.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Heimsókn í fóta og búnaðarskoðun á Landsmóti
Á hestamótum á reglum samkvæmt að skoða búnað og manns og hests og á Landsmóti er það að sjálfsögðu gert. Blaðamaður kom við hjá skoðunnarmönnum, þeim Mána Hilmarssyni og Unnsteini Grétarssyni og fékk að fræðast um þeirra störf. Það er járningamannafélag Íslands sem sér um þessi mál á Landsmóti og eru þeir staðsettir sunnan vallar og taka þar á móti keppendum þegar þeir hafa lokið keppni. Það eru fimm kappar sem skiptast á í þessu ábyrgðarmikla starfi.Meira -
Ferðamaður festist í grjóti við höfnina á Sauðárkróki
Björgunarsveitin Skagafjarðarsveit var kölluð út á Sauðárkróki síðastliðinn sunnudag, 5. júlí, vegna óvenjulegs atviks við hafnargarðinn. Erlendur ferðamaður hafði fest sig rækilega á milli stórgrýtis í garðinum eftir að hafa reynt að bjarga síma sínum. Þetta var sjötta útkall sveitarinnar það sem af er sumri.Meira -
Blíðan í Hjaltadal svíkur ekki
Það er þriðjudagur á Landsmóti á Hólum. A-flokks gæðingar og stóðhestar fljúga um vellina og dómarar eru í góðu skapi, eðlilega. Forkeppnum er að ljúka og við taka milliriðlar þar sem 30 efstu í hverjum flokk fá að spreyta sig einir á vellinum. Sama á við á kynbótavellinum. Þar klárast fordómar í dag og við taka yfirlitssýningar á morgun.Meira -
16 umsóknir um stöðu sveitarstjóra á Skagaströnd
Umsóknarfrestur um stöðu sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagastandar rann út 30. júní síðastliðinn. Á vefsíðu Skagastrandar er sagt frá því að alls bárust 16 umsóknir en tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Nú að afloknum sveitarstjórnarkosningum á Norðurlandi vestra hefur verið gengið frá ráðningu sveitarstjóra í þremur af þeim fjórum sveitarfélögum sem eru á svæðinu.Meira -
Listakot Dóru hefur opnað þemasýningu um líf og störf Agnesar Magnúsdóttur
Laugardaginn 4. júlí var ný og áhugaverð þemasýning opnuð í Listakoti Dóru í Vatnsdalshólum. Sýningin er helguð Agnesi Magnúsdóttur, lífi hennar og störfum, auk þess sem rýnt er í almenn kjör og örlög kvenna á þessum tíma. Það er Hólmfríður Dóra Sigurðardóttir, stjórnandi gallerísins, sem stendur að sýningunni en ellefu listamenn eiga þar verk sem unnin voru sérstaklega fyrir tilefnið. Sýningin mun standa allt til 20. september næstkomandi. Opið er alla daga vikunnar frá kl. 13:00–18:00, að mánudögum undanskildum.Meira
