Sigurður Líndal í stjórn Markaðsstofu Norðurlands

Stjórn Markaðsstofu Norðurlands. Frá vinstri, Þórdís Bjarnadóttir, Sigurður Líndal Þórisson, Baldvin Esra Einarsson, Edda Hrund Guðmundsdóttir og Tómas Árdal. Á myndina vantar Viggó Jónsson og Arngrím Arnarson.Mynd: northiceland.is
Stjórn Markaðsstofu Norðurlands. Frá vinstri, Þórdís Bjarnadóttir, Sigurður Líndal Þórisson, Baldvin Esra Einarsson, Edda Hrund Guðmundsdóttir og Tómas Árdal. Á myndina vantar Viggó Jónsson og Arngrím Arnarson.Mynd: northiceland.is

Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands var haldinn á Fosshótel Húsavík í gær. Meðal dagskrárliða var stjórnarkjör þar sem kosið var um tvær stöður aðalmanna á Norðurlandi eystra og eina á Norðurlandi vestra.  Aðalmenn í stjórn Markaðsstofu Norðurlands eru kosnir til tveggja ára í senn og varamenn á hverju ári.

Sigurður Líndal Þórisson, framkvæmdastjóri Selaseturs Íslands á Hvammstanga, var einn í framboði frá Norðurlandi vestra og því sjálfkjörinn. Á Norðurlandi eystra buðu fjórir sig fram til stjórnarstarfa, þau Edda Hrund Guðmundsdóttir Skagfield, Arngrímur Arnarson, Hlynur M. Jónsson og Erla Torfadóttir. Það voru þau Edda Hrund Guðmundsdóttir Skagfield, hótelstjóri Hótels Laxár í Mývatnssveit og Arngrímur Arnarson, markaðsstjóri Norðursiglingar á Húsavík sem urðu hlutskörpust.

Stjórn Markaðsstofu Norðurlands er nú þannig skipuð: Baldvin Esra Einarsson frá Saga Travel og er hann jafnframt formaður, Viggó Jónsson frá Drangeyjarferðum, Sigurður Líndal Þórisson frá Selasetri Íslands, Arngrímur Arnarson frá Norðursiglingu og Edda Hrund Guðmundsdóttir frá Hótel Laxá. Varamenn eru Tómas Árdal frá Arctic Hotels/KK Restaurant og Þórdís Bjarnadóttir frá Höldi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir