Skagstrendingar hyggjast reisa glæsileg baðlón við Hólanes

Ein myndanna sem sjá má í ítarefni með fréttinni á vef Skagastrandar.  MYND: SKAGASTRÖND.IS
Ein myndanna sem sjá má í ítarefni með fréttinni á vef Skagastrandar. MYND: SKAGASTRÖND.IS

Síðastliðið ár hefur verið unnið að uppbyggingu glæsilegra baðlóna við Hólanes á Skagaströnd, á milli gamla barnaskólans og Nes listamiðstöðvar. Í frétt á vef Skagastrandar segir að áætlað sé að heildarfjárfesting við bygginguna geti numið um hálfum milljarði og að verktími sé um tvö ár. Búið er að tryggja fjármögnun verkefnis að hluta og áætlað að henni ljúki á næstu mánuðum.

Gert er ráð fyrir að ​lokið verði við hönnunar- og skipulagsvinnu á árinu 2021 og framkvæmdir geti hafist 2022 miðað við óbreyttar forsendur. Böðin verða staðsett við sjávarmálið á Hólanesi sem er miðsvæðis á Skagaströnd og skartar tilkomumiklu útsýni yfir Húnaflóann og Strandafjöllinn.

„Þessi umfangsmikla uppbygging mun verða mikilvæg lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra og böðin án efa eftirsóknarverður viðkomustaður fyrir þá ferðalanga sem þræða Norðurstrandarleiðina. Þá verða þau einnig kærkomin og heilsueflandi viðbót við þjónustu fyrir heimamenn.“ segir Halldór Gunnar Ólafsson oddviti sveitarstjórnar á Skagaströnd.

Skoða má fyrstu drög að hönnun svæðisins og útliti baðstaðarins á Skagaströnd.is >

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir