Skólasetning Grunnskóla Blönduóss
Grunnskólinn á Blönduósi verður settur fimmtudaginn 20. ágúst næstkomandi kl. 11:00 í Blönduóskirkju.
Foreldrar eru hvattir til þess að koma með börnum sínum. Að lokinni skólasetningarathöfn munu nemendur hitta umsjónarkennara sína og fá afhentar stundatöflur.
Kennsla í 2.-10. bekk hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 21. ágúst. Nemendur í 1. bekk verða boðaðir til viðtals með forráðamönnum föstudaginn 21. ágúst og hefja nám samkvæmt stundaskrá mánudaginn 24. ágúst.
Þeir foreldrar sem eiga eftir að skrá börn sín í skólann eru beðnir um að gera það sem fyrst hjá skólastjóra.
/Blönduskóli.is
