Sölu á Neyðarkallinum formlega lokið á Skagaströnd

Nú er formlegri sölu á neyðarkallinum hjá Björgunarsveitinni Strönd lokið en samkvæmt heimasíðu björgunarsveitarinnar verður áfram hægt að kaupa hjá þeim kalla, t.d. niður í í Bjarnabúð á Hafnarslóð 6 eða með því að setja sig í samband við einhvern björgunarsveitarmannanna.

„Einnig eigum við eitthvað til af eldri köllum ef einhver er að safna og vantar í safnið,“ segir á heimasíðu Strandar og um leið er þeim þakkað sem styrktu björgunarsveitina með kaupum á kallinum góða.

 

Fleiri fréttir