Sótt um húsaleigubætur fyrir 15. jan

Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til áramóta og hefur  Blönduóssbær auglýst að umsóknir vegna húsaleigubóta skulu hafa borist eigi síðar en 15 dögum fyrir lok þess mánaðar sem sótt er um húsaleigubætur fyrir.

  • Umsókn þarf að fylgja:
  •  
  • •          Útfyllt umsóknareyðublað
  • •          Að umsækjandi hafi þinglýstan húsaleigusamning til a.m.k. sex mánaða
  • •          Launaseðlar þeirra sem í íbúðinni búa fyrir þrjá síðustu mánuði.
  • •          Staðfesting skóla um nám ungmenna 20 ára og eldri
  • •          Skattframtal síðasta árs staðfest af skattstjóra

 

Húsaleigubætur greiðast mánaðarlega fyrir síðastliðin mánuð en frekari upplýsingar liggja frammi á bæjarskrifstofu Blönduóss, Hnjúkabyggð 33 eða á vef Félagsmálaráðuneytisins www.felagsmalaraduneyti.is

Fleiri fréttir