Stígandi kaupir Húnabraut 29 á Blönduósi

Húnahornið segir frá því að nýlega var undirritaður samningur milli Ámundakinnar ehf. og Trésmiðjunnar Stíganda ehf. um kaup Stíganda á húsinu að Húnabraut 29 á Blönduósi. Viðskiptin eiga sér nokkurn aðdraganda og eru hugsuð til að treysta rekstrargrundvöll fyrirtækisins enn betur. Rekstur Stíganda flest undanfarin ár hefur skilað jákvæðri niðurstöðu og er verkefnastaðan góð um þessar mundir og horfur eru á að svo verði áfram næstu misserin.
Í tilkynningunni kemur fram að áform eru um að endurnýja hluta af húsnæði fyrirtækisins, m.a. til að bæta vinnuaðstöðu starfsmanna og mæta kröfum eftirlitsaðila. Nú eru um 20 starfsmenn hjá fyrirtækinu, þar af nokkrir sem verktakar.
Stjórn félagsins skipa Guðmundur R. Sigurðsson, sem er stjórnarformaður og Jón Gíslason og Gunnlaugur Skúlason eru meðstjórnendur. Framkvæmdastjóri er Guðmundur Sigurjónsson.
Heimild: Húni.is